Tónahvarf 6A-6P

Skilalýsing

Húsið verður tilbúið í apríl 2019. Húsið er staðsteypt, filtmúrað að utan. Einangrað að innan og múrað. Húsinu verður skilað fullbúnu að utan og lóðin fullbúin. Húsið verður ljósmálað að utan og með gráum Rational gluggum og svalir verða í gráum lit. Bílskúrshurðir frá Nassau verða í gráum lit með mótor og opnara. Aðrar hurðir verða Nassau hurðir i gráum lit.

Húsbyggjandi er Leigugarðar ehf. kt. 571208-0240, Bæjarlind 4, 201 Kópavogur. Aðalverktaki er ÁF-hús ehf. kt. 691191-1099

Húsinu verður skilað fullbúnu að utan og fullbúið að innan með eftirfarandi hætti:

1. Frágangur skilveggja:
    a. Staðsteyptir útveggir eru múrhúðaðir og einangraðir að innan, málaðir.
    b. Hlaðnir skilveggir, múrhúðaðir og málaðir.

2. Gólf verða með epoxy. Efri hæðir eigna sem eru á tveimur hæðum verða parketlagðar.

3. Frágangur lofta: Holplötur verða málaðar.

4. Stigi upp á efri hæð verður fullkláraður skv. teikningu arkitekts og verkfræðings.

5. Hita-, neysluvatns-, loftræsiis og raflagnir verða fullkláraðar í samræmi við teikningar.

6. Afstúkuð rými verða kláruð skv. teikningum með innréttingum.

7. Rafmagn verður klárað.

Gert er ráð fyrir að allar neyslu- og raflagnir séu utanáliggjandi.

Kaupendur yfirtaka virðisaukaskattskvöð, þ.e leiðréttingarkvöð innskatts á hinu selda, sbr. lög nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, reglugerð nr. 577/1989 um frjálsa og sérstaka skráningu vegna leigu eða sölu á fasteign og reglugerð nr. 192/1993 um innskatt. Seljandi mun tilkynna skattstjóra um yfirtökuna.

Kópavogur, 18. febrúar 2019