Naustavör 28 - 34

Sala er hafin á íbúðum í glæsilegu 44 íbúða fjölbýlishúsi við Naustavör 28-34 í Bryggjuhverfinu í vesturbæ Kópavogs Íbúðirnar eru frá 76.46 til 244.9 fm. Íbúðirnar verða með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og AEG eldhústækjum frá Ormsson. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða stórum timburveröndum. Stæði í bílageymslu fylgja flestum íbúðum.

Naustavör 28-34 er 4ra hæða fjölbýlishús með lyftu við Naustavör í Kópavogi staðsett örstutt frá smábátahöfninni, með glæsilegu sjávarútsýni úr flestum íbúðunum. Í húsinu eru 2ja til 4ra herbergja íbúðir. Íbúðirnar hafa annaðhvort svalir eða verönd. Tvennar svalir fylgja sumum íbúðum. Bílageymsla er upphituð, sérgeymslur eru í kjallara.

Íbúðirnar verða afhentar með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum. Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin og verður mynddyrasími með einu símtóli í íbúð.

Sameign verður frágengin utan sem innan og í sameign verður vönduð lyfta. Anddyri verður flísalagt en stigar og stigapallar teppalagðir. Gangstéttar við húsið verða með snjóbræðslukerfi skv teikningum. Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, hitastýrðum blöndunartækjum, upphengdum salernum, sturtum með glerhlið. Innréttingar og innihurðir eru vandaðar, sjá nánar í skilalýsingu.

Bryggjuhverfið á Kársnesi í Kópavogi er staðsett á fallegum stað á móti Nauthólsvíkinni, fjölskylduvænu og fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Siglingafélagið Ýmir er með aðstöðu við smábátahöfnina og er það iðandi af lífi. Í bryggjuhverfinu á Kársnesinu er gert ráð fyrir verði um 400 íbúðir. Flutt var í fyrstu íbúðir hverfisins á vormánuðum 2015. Áætluð afhending á fyrstu íbúðum að Naustavör 28-34 er í apríl- júlí 2019.