Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Flísar verða 30x60 cm. á gólfum á baðherbergi og þvottahúsi. Flísar á veggjum á baðherbergi verða 30x60 cm. Frá Parka eða sambærilegt.
Útveggir íbúðarinnar eru einangraðir að innan múraðir og sandspartlaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 5% eða sambærilegt.
Steypt loft eru slípuð, sandspörsluð og máluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2% eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu þar sem við á.
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum Samverk eða viðkomandi glerframleiðanda hverju sinni. Við kaup á íbúð yfirtekur kaupandi ábyrgð framleiðanda.
Sólbekkir frá Fanntófell eru plastlagðir með beinum framkanti þar sem við á.
Yfirfelld hurð 42 Db með felliþröskuldi inn í íbúðina. Innihurðir verða yfirfeldar hvítar og fylgja fullfrágengnar. Hurðirnar eru frá Parka og framleiddar í Austurríki, eða sambærilegt.
Fataskápar (fataherbergi þar sem við á og þá án hurða fyrir skápum) eru í svefnherbergjum og forstofu. Innréttingar eru frá Brúnás ehf. og eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir eru sprautulakkaðar hvítar í svefnherbergjum og svartbæsaður eikarspónn í forstofu.
Eldhúsinnrétting frá Brúnás ehf. er að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir eru sprautulakkaðar hvítar eða svartbæsaður eikarspónn borðplötur eru plastlagðar, ásamt vaski og blöndunartækjum frá Tengi. Einnig fylgir AEG spanhelluborð, ofn með blæstri, örbylgjuofn ásamt gufugleypi með kolasíu og uppþvottavél frá Bræðrunum Ormsson ehf.
Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innréttingar eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar sprautulakkaðar í hvítum lit. Á baðherbergi er einnig uppsettur speglaskápur, handlaug í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Blöndunartæki frá Tengi eru við handlaug og innfelld tæki í vegg við sturtu.
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás ehf. úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki á vegg eða borði. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru með timburgrind og málaðri plötuklæðningu. Sérgeymslur eru án innréttinga með hvítmálaðri yfirfelldri hurð þar sem við á. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
Timburverandir fylgja íbúðum á jarðhæð þar sem við á.
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhitakerfi skv. teikningum. Ofnakerfi er í sameign og verða hitastýrðir lokar á því.
Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
Rafmangs- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstenglar eru í alrými og herbergjum. Símatengill er í alrými og herbergjum.
Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum í stigahúsi eru uppsett handrið, gólf og veggir spörtluð og máluð. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli. Innri anddyrishurð er úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur eru með rafmagnsopnun.
Fólkslyftur eru af gerðinni KONE eða sambærilegt og eru tilbúnar til notkunar í stigahúsum.
Bílgeymsla er niðurgrafin að hluta með Troldtekt-plötum og/eða einangrun í lofti þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru ýmist pússaðir, hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði.
Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Á gólf kemur Epoxy.
Veggir eru með múrfiltun og málaðir. Á gólf kemur Epoxy.
Húsið er einangrað með plasteinangrun að innan og múrað ( filterað) og málað að utan.. Innfellur og einstaka fletir eru timburklæddir inni á svölum íbúða. Kjallaraveggir og fleira eru múraðir á einagrun, múrfiltun og málaðir eftir því sem við á.
Þak yfir 4.hæð er steypt þakplata með tvöföldum eldsoðnum tjörupappa og einangrun þar ofan á.
Svalir eru steyptar með vatnshalla að niðurföllum. Ofan á steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa, timburlektur og rakaþolin þrýstieinangrun þar sem ekki er einangrun undir plötu. Lektur eru klæddar með gagnvarðri furuklæðningu.
Svalahandrið eru úr áli og gleri frá Ál og gler eða sambærilegt. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalagólf 1. hæðar er klætt með gagnvarðri furuklæðningu. Svalagólf 2-4 hæðar eru slípuð og sílanborin Svalaloft eru steypt slípuð grunnuð og máluð.
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Berki. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
Lóð er fullfrágengin með grasþökum og gróðri samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og í römpum samkvæmt teikningu. Bílastæði og rampar eru steyptir og eða malbikaðir eftir því sem við á. Allur lóðarfrágangur við húsið getur ekki endurspeglað að fullu teikningar lóðarhönnuða né samþykktar byggingarnefndateikningar arkitekts s.s gras, gróður, palla við íbúðir og allan annan frágang. Endanlegt útlit og allur frágangur lóðarinnar sem og aðlögun að næsta götum,byggingum og lóðarmörkum verður samkvæmt ákvörðun verkefnastjóra og skrúðgarðyrkjumeistara Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hverju sinni.
Arkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson (Archus) og Gunnar Páll Kristinsson (Rýma arkitektar).
Verkfræðihönnun: Teiknistofa Þráinn & Benedikt.
Raflagnahönnun: Tesla rafmagnshönnun.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is
Athygli skal vakin á því að Byggingarfélag Gylfa og Gunnars áskilur sér allan rétt til að gera útlits, efnis- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur.
Íbúðir verða afhentar á tímabilinu feb-mars 2020. Bílgeymsla verður afhent samtímis og íbúðir.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar.Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. www.bygg.is