Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Flísar koma frá Birgisson ehf.
Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.
Steypt loft eru slípuð, og slétt sandspörtluð. Grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu þar sem við á.
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum gler innflytjanda (Gluggasmiðjan).
Sólbekkir frá Fanntófell eru úr harðplasti með ABS-laser kanti þar sem við á.
Yfirfelld hurð EICS-30 inn í íbúðina og yfirfelldar innihurðir spónlagðar úr eik fylgja fullfrágengnar. Rennihurðar verða spónlagðar með eik þar sem við á. Hurðirnar eru frá Parka og framleiddar í Þýskalandi og Austuríki.
Fataskápar (fataherbergi þar sem við á) eru í svefnherbergjum og forstofu. Innréttingar eru frá Axis ehf. og eru að innan úr hvítum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar með eik.
Eldhúsinnrétting eru frá Axis og er að innan úr hvítum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar með eik og lakkaðar þar sem við á. Borðplötur verða úr Virgo steini. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja sléttfellt spanhelluborð, ofn með blæstri, örbylgjuofn, hljóðlát alklæðandleg uppþvottavél ásamt ljósagufugleypi frá Bræðrunum Ormsson.
Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Axis eru að innan úr hvítum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir lakkaðar hvítar. Á baðherbergi verða speglaskápar með lýsingu. Borðplata úr gegnheilu harðplasti. Höldur í innréttingu verða kantaðar. Handlaug er í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri verður á baðherbergi. Innbyggt blöndunartæki frá Tengi er í sturtu. Hitastýrt blöndunartæki frá Tengi er við handlaug.
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Axis úr hvítum plasthúðuðum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki á vegg eða borði. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru með timburgrind og málaðri plötuklæðningu. Sérgeymslur eru án innréttinga með hvítmálaðri yfirfelldri hurð þar sem við á. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
Timburverandir og skjólgriðingar úr lerki fylgja íbúðum á jarðhæð þar sem við á. Lerkið skal vera ómeðhöndlað samkvæmt artkitekt.
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- sem og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.
Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill er í alrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Dimmar verða á innfelldum ljósum.
Reykskynjarar í íbúðum og sameign verða vaktaðir af stjórnstöð öryggisfyrirtækis. Íbúðareigendur munu geta bætt við vöktuðum reykskynjurum innan íbúðar óski þeir þess og þá í samstarfi við öryggisfyrirtæki sem mun sjá um vöktun. Einnig er hægt að sækja um öryggishnapp sé þess þörf sem eru niðurgreiddir af Sjúkratryggingum Íslands.
Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af akrílmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum eru uppset handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli. Innri anddyrishurð er úr áli með mótorknúnum hurðarpumpum eða rennihurðabúnaði þar sem við á. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur eru með rafmagnsopnun.
Fólkslyftur eru af gerðinni Schindler 3300® og eru tilbúnar til notkunar í stigahúsum.
Bílgeymsla er niðurgrafin með Troldtekt-plötum og/eða einangrun í lofti þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru ýmist pússaðir, hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Rafmagnstengill er í hverju stæði fyrir hefbundinn rafmagnsbíl. Tengill er tengdur inná rafmagnsmæli hverjar íbúðar.
Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
Sorpgeymsla er í hverri sameign. Veggir eru með múrfiltun og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
Húsið er einangrað með 125 mm steinull og álklætt að mestu að utan. Kjallaraveggir og fleira eru með múrfiltun og málaðir.
Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofaná einangrun kemur vatnsvarnardúkur með öndun, einangrun er fergt með sjávarmöl/völusteinum. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
Svalagólf eru steypt og slípuð eða með múrfiltun eftir því sem við á. Svalahandrið eru úr áli og gleri. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru steypt slípuð grunnuð og máluð. Tekið skal fram svalaskjól eru ekki vatnsheld.
Leyfilegt er að setja glerskjól á svalir þar sem annaðhvort eru steyptar svalir yfir eða steypt skyggni. Hinsvegar er ekki leyfilegt að setja svalalokanir á 1. hæð hússins við sólpalla.
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Gluggasmiðjunni. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
Lóð er fullfrágengin með grasþökum og gróðri samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð.
Arkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson og Gunnar Páll Kristinsson, Rýma arkitektar.
Verkfræðihönnun: VEKTOR - hönnun & ráðgjöf
Raflagnahönnun: Helgi Kr. Eiríksson, Lúmex
Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Landslag ehf.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is
Íbúðir í Strikinu 1 ABC verða afhentar í þrennu lagi:
Strikið 1A: Mars 2019
Strikið 1B: Maí 2019
Strikið 1C: Apríl 2019
Sameign að utan og lóð verða afhent haustið 2019. Bílgeymsla verður afhent haustið 2019.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. www.bygg.is