Húsið

Austurhólar 8 er eitt af tveimur hæstu íbúðarbyggingum á Suðurlandi, 6 hæðir. Í húsinu eru 35 íbúðir frá 69,7 m2 upp í 101,5 m2 ásamt sameign á jarðhæð en geymslur eru allar inni í íbúðum. Í húsinu eru því 2 herbergja, 3 herbergja og 3-4 herbergja íbúðir.

Austurhólar 8 eru í austurhluta bæjarins, nánar tiltekið í Dísarstaðalandi. Þaðan er stutt í alla helstu þjónustu og nýbyggður leikskóli á næstu lóð við húsið. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd að utan með viðhaldslitlum klæðningum. Öllum íbúðum verður skilað fullbúnum með gólfefnum.